Afar umdeilt atvik kom upp í 2-1 sigri Manchester City á Arsenal á Etihad í dag, en þar hefði brasilíski varnarmaðurinn Gabriel auðveldlega getað séð rautt spjald fyrir viðskipti sín við Erling Braut Haaland.
Gabriel og Haaland voru í stanslausri glímu í leiknum og hlaut að koma að því að allt myndi sjóða upp úr.
Á 83. mínútu leiksins varð Haaland dauðþreyttur á varnarmanninum og fór haus í haus við miðvörðinn, en Gabriel brást við með ógnandi tilburðum og skallaði Haaland.
Skallinn var kannski ekki rosalega fastur og þá bauð Haaland ekki upp á neitt leikrit eins og margir leikmenn hefðu gert í þessari stöðu.
Dómari leiksins ákvað að gult spjald á báða væri hæfileg refsing, en dæmi nú hver fyrir sig. Atvikið má sjá hér fyrir neðan.
Sjáðu atvikið hér og svo má finna X-tengil hér fyrir neðan
How on earth has Gabriel got away with that then? ???????? pic.twitter.com/z5atTQZuPY
— EPL Bible (@EPLBible) April 19, 2026



