Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
banner
   sun 19. apríl 2026 19:32
Brynjar Ingi Erluson
Spekingarnir sammála ákvörðun dómarans - „Verðskuldaði ekki rautt spjald“
Erling Haaland og Gabriel í baráttunni í dag
Erling Haaland og Gabriel í baráttunni í dag
Mynd: EPA
Spekingarnir í kringum leik Manchester City og Arsenal voru meira og minna sammála um það að Anthony Taylor, dómari leiksins, hafi tekið rétta ákvörðun með að reka ekki Gabriel af velli.

Gabriel var stálheppinn að fá ekki rautt spjald fyrir að skalla Erling Braut Haaland undir lok leiks.

Þeir hafa lengið eldað grátt silfur og bardagar þeirra oft mjög skemmtilegir, en spekingarnir fögnuðu því að Taylor hafi notað almenna skynsemi og gefið báðum gult spjald.

„Ég naut bardagans. Gabriel og Haaland hafa reynst hvor öðrum erfiðir, en dómarinn meðhöndlaði þetta mjög vel. Þeir voru erfiðir, baráttuglaðir, en þetta eru akkúrat leikirnir sem við viljum sá og sem við höfum gaman af því að horfa á. Mér fannst Gabriel ekki verðskulda rautt spjald,“ sagði Patrick Vieira, fyrrum leikmaður Arsenal og Man City.

Gary Neville og Micah Richards tóku í sama streng og sögðu Taylor hafa lesið leikinn vel.

„Ef Gabriel hefði skorað seinna í leiknum eða haft áhrif á leikinn þá hefði Pep Guardiola orðið öskuillur. Það er alveg samþykkt að þú getur farið haus í haus, en það er vanalega rautt spjald um leið og þú ýtir hausnum fram. Ég var bara ánægður að hann hafi ekki rekið hann af velli. Ég fékk rautt fyrir að gera þetta við Steve McManaman.“

Richards sagðist þá ekki vilja sjá Gabriel fara í þriggja leikja bann.

„Þetta er líklega rautt spjald, en dómarinn notaði almenna skynsemi. Maður verður að hrósa honum fyrir það. Það hefði ekki verið neitt frábært hefði hann fengið þriggja leikja bann og maður vill helst ekki sjá það. Ég var bara ánægður að sjá bardagann.“

Roy Keane hrósaði Haaland sem hefði auðveldlega getað kastað sér í jörðina og sótt rautt spjald á Gabriel.

„Þetta er það sem maður vill sjá, jafnvel þegar það kemur að atvikum þar sem menn fara í haus í haus. Haaland hefði auðveldlega getað kastað sér í jörðina eins og Walker gerði fyrir nokkrum árum. Maður vill ekki sjá leikmenn rúlla sér í grasinu og reyna fiska menn af velli. Það er dómarinn sem ákveður þetta og ég var ánægður með hvað hann gerði í þessari stöðu. Það var bara áfram gakk,“ sagði Keane.
Slapp
banner
banner