Fotbolti.net
19.05.21 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

Svíþjóð: Böðvar fékk rautt í tapi

Svíþjóð: Böðvar fékk rautt í tapi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

<b>Helsingborg 0 - 2 Norrby</b>
0-1 D. Vukojevic ('13)
0-2 D. Yaldir ('27)
<u>Rautt spjald:</u> Böðvar Böðvarsson, Helsingborg ('67)
Böðvar Böðvarsson var í byrjunarliði Helsingborg sem tók á móti Norrby í sænsku B-deildinni.

Norrby komst í tveggja marka forystu á fyrsta hálftímanum en eftir það tóku heimamenn völdin á vellinum.

Boltinn rataði þó ekki í netið og varð verkefnið erfiðara á 67. mínútu þegar Böðvar fékk annað gula spjald sitt í leiknum.

Lokatölur urðu því 0-2 og er Norrby í öðru sæti, með þrettán stig eftir sjö umferðir. Helsingborg er með níu stig eftir að hafa tapað síðustu tveimur leikjum í röð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.