Leikur Spánverja og Pólverja er í fullum gangi á Evrópumótinu en staðan er jöfn 1-1 þegar um það bil 20 mínútur eru eftir af leiknum.
Á 55. mínútu kom Kacpar Kozlowski inná sem varamaður í liði Póllands en Mateuz Klich leikmaður Leeds var tekinn af velli.
Kozlowski er 17 ára og 246 daga gamall en með innkomu sinni í þennan leik er hann yngsti leikmaðurinn til að taka þátt á Evrópumótinu frá upphafi.
Þetta vekur mikla athygli sérstaklega í ljósi þess að hann bætir sex daga gamalt met enska miðjumannsins Jude Bellingham en hann var 17 ára og 349 daga gamall þegar hann kom inná sem varamaður í leik Englands og Króatíu á sunndaginn.
17 - Kacper Kozlowski (17 years and 246 days) has become the youngest ever player to make an appearance at the European Championships, overtaking Jude Bellingham's record (17y 349d) set for England six days ago. Fleeting. #EURO2020 #POL
— OptaJoe (@OptaJoe) June 19, 2021
Athugasemdir