Fotbolti.net
19.06.25 - 10:22
Elvar Geir Magnússon

Trump spurði leikmenn Juventus: Kæmist kona í liðið ykkar?

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.

Canon

Mynd: EPA

Leikmenn og starfslið Juventus fóru í furðulega heimsókn til Donald Trump í Hvíta húsið. Fyrir framan fjölmiðla reyndi Bandaríkjaforseti að fá þá til að blanda sér í umræðu um transkonur í íþróttum.

Ítalska stórliðið er í Bandaríkjunum að taka þátt í HM félagsliða. Leikmenn og starfsmenn þess stóðu fyrir aftan skrifborð Trump í Hvíta húsinu á meðan hann fór yfir ýmis mál fyrir framan myndavélarnar.

Trump skrifaði undir lög í febrúar sem banna transkonum frá þátttöku í kvennaíþróttum og vildi fá að heyra skoðanir Juventus manna á þessu máli.

„Jæja félagar, myndi kona komast í liðið hjá ykkur?" spurði Trump leikmenn Juventus. Þeir brostu vandræðalega en svöruðu ekki.

Trump spurði þá aftur og Damien Comolli, framkvæmdastjóri Juventus, svaraði á þennan hátt: „Við erum með mjög gott kvennalið."

„En eiga þeir að spila með konunum?" spurði Trump þá en Comolli ákvað ekki að svara. Þá sagði Trump: „Hann er mjög pólitískur í svörum."

Trump ræddi ýmis mál við fjölmiðla, þar á meðal átök Ísraels og Írans sem eru að stigmagnast, meðan leikmenn Juventus stóðu fyrir aftan hann. Svo sannarlega stórfurðulegur fréttamannafundur í Hvíta húsinu.
Trump: HM getur orðið hvatning fyrir Rússa að binda enda á stríðið
TENGT EFNI

Trump: HM getur orðið hvatning fyrir Rússa að binda enda á stríðið

Kenan Yildiz, leikmaður Juventus.

Kenan Yildiz, leikmaður Juventus.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.