Fotbolti.net
19.06.26 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Stuðningsmenn Arsenal með augun opin

Balogun fagnar í fyrsta leik Bandaríkjanna á HM.

Balogun fagnar í fyrsta leik Bandaríkjanna á HM.

Canon

Mynd: EPA

Eftir frammistöðu Folarin Balogun með Bandaríkjunum í opnunarleiknum á HM fóru stuðningsmenn Arsenal strax að velta fyrir sér hvort félagið væri með ákvæði um að geta keypt hann frá Mónakó.

Svo er ekki en Lundúnafélagið fær ákveðna prósentu af næstu sölu og ef hann heldur áfram að spila vel á HM gæti sú upphæð verið býsna góð.
Balogun er uppalinn hjá Arsenal og steig sín fyrstu skref þar en hann hefur síðustu árin leikið í Frakklandi. Bandaríkjamaðurinn gekk til liðs við Mónakó frá Arsenal árið 2023 og hefur sýnt glimrandi takta í franska boltanum, þó meiðsli hafi hægt á framgangi hans.

Heimsmeistaramótið gæti orðið fullkominn vettvangur fyrir Balogun til að minna á sig. Bandaríkin leika á heimavelli og ef lið Mauricio Pochettino nær langt gæti Balogun orðið eitt af andlitum mótsins. Mónakó er talið meta framherjann á um 45 til 50 milljónir evra, en Arsenal, Inter og AC Milan hafa verið nefnd til sögunnar í tengslum við hann.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 15. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Þessir gætu nýtt HM sem stökkpall að stærra félagi
TENGT EFNI

Þessir gætu nýtt HM sem stökkpall að stærra félagi

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.