Fotbolti.net
19.06.26 - 09:58
Elvar Geir Magnússon

Sjáðu HM mörkin: Vandræðaleg mistök færðu Mexíkó mark á silfurfati

Sjáðu HM mörkin: Vandræðaleg mistök færðu Mexíkó mark á silfurfati
Canon

Mynd: EPA

Mexíkó varð fyrsta þjóðin til að innsigla sæti í 32-liða úrslitum Hm með því að vinna Suður-Kóreu 1-0. Luis Romo gerði eina markið á 50. mínútu en hann fékk það algerlega á silfurfati.

Fyrirgjöf kom frá vinstri frá Julian Quinones og á miðjan teiginn á Raul Jimenez sem fór upp í baráttu við varnarmenn Suður-Kóreu.

Þaðan fór boltinn hátt upp í loft og ætlaði Seung-gyu Kim markvörður að handsama boltann, en hljóp á Gi-Hyuk Lee þannig þeir duttu báðir í grasið áður en boltinn datt fullkomlega fyrir Romo sem kom Mexíkó í forystu. Agalegt hjá Suður-Kóreu.

Hér að neðan er það helsta úr leiknum og einnig úr stórsigri Kanada gegn Katar.
Mexíkó 1 - 0 Suður-Kórea
1-0 Luis Romo ('50 )



Kanada 6 - 0 Katar
1-0 Cyle Larin ('16 )
2-0 Jonathan David ('29 )
3-0 Jonathan David ('45 )
4-0 Nathan-Dylan Saliba ('64 )
5-0 Mohamed Al-Mannai ('75 , sjálfsmark)
6-0 Jonathan David ('90 )
Rautt spjald: ,Homam Ahmed Elamin, Katar ('33)Assim Madibo, Katar ('53)

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.