Fotbolti.net
19.06.26 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sat nánast allan leikinn - „Helgi oft með betri rödd en ég til þess að öskra"

Rúnar Kristinsson.

Rúnar Kristinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson var pollrólegur á meðan leik Fram og KA stóð á mánudagskvöld. Rúnar er þjálfari Fram og hélt sig að lang mestu leyti á stól við hlið varamannabekksins hjá Fram.

Hann stóð þó allavega einu sinni upp og æsti sig. Hann var alls ekki sáttur með þriðja markið sem KA skoraði og lét sína leikmenn heyra það.
Rúnar fékk hugdettu skömmu fyrir leik - „Fannst ég hafa gleymt einu atriði"
TENGT EFNI

Rúnar fékk hugdettu skömmu fyrir leik - „Fannst ég hafa gleymt einu atriði"

Lestu um leikinn: KA 3 - 4 Fram
„Mér fannst leikurinn svolítið skrítinn í fyrri hálfleik. Ég sit oftast í leikjum, stend ekkert allan tímann. Við Helgi (Sigurðsson) skiptum þessu dálítið á milli okkar, Helgi er frábær þjálfari og oft með betri rödd en ég til þess að öskra inn á. Við dreifum þessu og ég treysti Helga 100% í því að hjálpa mér, hann er aðstoðarþjálfari til þess að vera þjálfa með mér, ekki til að hafa engar skoðanir eða gera ekki neitt. Hann fær að fara fram og stýra liðinu með mér. Stundum stendur hann upp og í þessum leik var ég afskaplega rólegur."

„Mér fannst leikurinn skrítinn, mikill æfingaleiksbragur. Mér fannst við samt hafa nokkuð góða stjórn á því sem við vorum að gera, en ég hefði kannski viljað hafa aðeins betra skipulag. Ég sá á leikmönnum beggja liða... við vorum búnir að vera á Akureyri frá því um hádegi bara að hanga og það er oft óþægilegur undirbúningur fyrir leik. Mér fannst smá slen yfir okkur og það var líka mjög heitt sem er óvanalagt fyrir alla leikmenn á vellinum."

„Mér leið mjög vel, en þegar þeir skora í 3-4 þá kannski hafði ég smá áhyggjur af því að þú vilt auðvitað ekki fá á þig jöfnunarmark. Mér fannst við með full völd á leiknum í 2-4, ég fór því aðeins að reyna stýra líðinu aðeins meira og benda mönnum á hvar við viljum stoppa þá."


Skilur svekkelsi Hadda
Rúnar segir þá að hann skilji gremju Hallgríms Jónassonar, þjálfara KA, varðandi markið sem KA skoraði en fékk ekki að telja.

„Það er kynding inn á teignum, ég veit ekki á hvað hann dæmdi. Svona gerist í fótbolta, mikið um pústra, bæði í leikjum með og án VAR. Þetta er erfitt fyrir dómarana, það eru allir að ýta og erfitt að sjá kannski hver byrjaði hvað. Ég skil Hallgrím að vera fúll, ég veit ekki hversu oft ég sjálfur hef orðið fúll, þetta er hluti af þessu og oft skilur maður ekki af hverju eitthvað fer eins og það fer," segir Rúnar.
Helgi Sigurðsson er aðstoðarþjálfari Fram.

Helgi Sigurðsson er aðstoðarþjálfari Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram vann 3-4 útisgur á Akureyri.

Fram vann 3-4 útisgur á Akureyri.

Canon

Mynd: Sigurður Elefsen

Rúnar Kristins: Bara eins og að byrja Íslandsmótið upp á nýtt

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.