Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   sun 19. júlí 2020 22:10
Magnús Þór Jónsson
Jói Kalli: Ég tek tapið á mig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var svekktur Skagaþjálfari sem mætti í viðtal eftir 6-2 tap í Fossvoginum í kvöld. 

„Fyrri hálfleikurinn var þokkalegur af okkar hálfu, við komumst oft á tíðum í fínar stöður.  Ég tek svo ákvörðun að breyta aðeins í hálfleik og Víkingarnir gengu á lagið og gengu frá okkur. Ég tek það á mig að ég klúðraði seinni hálfleiknum. Við breyttum áherslum, fórum meira í 4-4-1-1 og þeir komust þá oft aftur fyrir okkur og refsuðu grimmilega.  Ég kenni mínum leikmönnum ekki um það, þetta voru röng skilaboð frá mér," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 6 -  2 ÍA

Það er búinn að vera óstöðugleiki í leik ÍA.

„Þetta er ekki endilega út aldri liðsmanna.  Stundum dettur þetta með þér og stundum ekki.  Mér fannst HK-leikurinn flottur af okkar hálfu, Gróttuleikurinn frábær og Valsleikurinn góður. Úrslitin í dag voru ekki góð en við höldum ótrauðir áfram."

Skagamenn skiptu mörgum reynsluboltum út í kvöld fyrir kornunga leikmenn, var það ekki svolítill kuldi?

„"Svona viljum við gera þetta. Ég hefði óskað þess að þessir strákar hefðu komið inn í hálfleik sem hefðu verið betur leikinn.  Undir lokin tók ég útaf menn sem ég vildi hvíla fyrir næsta leik.  Við ætlum okkur stig í leiknum við Stjörnuna á fimmtudaginn."

Nánar er rætt við Jóhannes í viðtalinu sem fylgir.
Athugasemdir
banner
banner
banner