Fotbolti.net
19.07.26 - 17:11
Brynjar Ingi Erluson

Kroos segir fyrsta markið skipta öllu - „Þá geta þeir gleymt þessu“

Kroos segir fyrsta markið skipta öllu - „Þá geta þeir gleymt þessu“
Canon

Mynd: EPA

Toni Kroos, fyrrum leikmaður Real Madrid og þýska landsliðsins, telur fyrsta markið í leik Argentínu og Spánar skipta gríðarlega miklu máli, en þjóðirnar mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins klukkan 19:00 í kvöld.
Kroos er einn besti miðjumaður 21. aldarinnar og réð lögum og lofum á miðjunni hjá Real Madrid, Bayern München og þýska landsliðinu um árabil.

Hann telur að komist Spánverjar yfir gegn Argentínu í kvöld muni þeir taka öll völd á vellinum, raða inn mörkum og tryggja sér heimsmeistaratitilinn.

„Þú vilt ekki mæta liði eins og Spáni þegar það er komið yfir og getur látið boltann ganga. Ef Spánverjar skora fyrsta markið geta Argentínumenn gleymt þessu. Þeir munu fá á sig þrjú eða fjögur mörk og ekki finna neinar lausnir,“ sagði Kroos.

Hann telur Argentínu ekki vera með betra lið en Þýskaland, sem féll úr leik í 32-liða úrslitum, en segir hugarfar Argentínumanna töluvert sterkara.

„Argentína er ekki betra lið en Þýskaland en Argentínumenn búa yfir ótrúlegum andlegum styrk og Messi bar þá inn í úrslitaleikinn. Leikskilningur Messi virðist aukast með hverjum deginum,“ sagði Kroos enn fremur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.