Tuchel útskýrir fjarveru Mainoo

Kobbie Mainoo spilaði ekki mínútu á mótinu

Mynd: EPA

Thomas Tuchel

Miðjumaðurinn Kobbie Mainoo kom ekkert við sögu með Englendingum á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó, en meiðsli komu í veg fyrir að hann fengi mínútur í bronsleiknum í gær.
Mainoo gekk í endurnýjun lífdaga hjá Manchester United eftir að Michael Carrick tók við af Ruben Amorim.
Hann fór á kostum með United á lokakafla tímabilsins og hjálpaði liðinu að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu.
Thomas Tuchel valdi Mainoo í 26 manna hóp Englands fyrir HM, en það vakti mikla athygli að miðjumaðurinn lék ekki eina einustu mínútu á mótinu. Það kom sérstaklega á óvart í ljósi þess að Declan Rice glímdi bæði við meiðsli og veikindi.
Englendingar féllu úr leik í undanúrslitum og mættu því Frökkum í bronsleiknum, þar sem báðir þjálfarar gerðu fjölmargar breytingar. Leikurinn virtist kjörið tækifæri fyrir Mainoo til að fá loksins mínútur, en hann var þá ekki í leikmannahópnum.
Tuchel sagði eðlilega skýringu vera á fjarveru hans, þar sem Mainoo hefði meiðst á æfingu.
„Kobbie meiddist á síðustu æfingunni fyrir leikinn. Hann fann skyndilega fyrir miklum verk í bakinu og var ekki leikfær,“ sagði Tuchel á blaðamannafundi.
Fyrrum leikmenn Manchester United, þeir Gary Neville og Nicky Butt, hafa báðir gagnrýnt Tuchel fyrir að nota Mainoo ekki á mótinu.
„Við vorum orðnir algjörlega búnir á því og komumst varla út úr eigin vítateig. Okkur var ýtt aftar og miðjumennirnir féllu niður vegna þess að þeir voru orðnir bensínlausir.“
„Maður horfir á Declan og sér að hann hefur ekki verið heill frá fyrsta degi. Það er stórt vandamál fyrir okkur þegar hann hefur hvorki orkuna né hraðann til að komast að boltanum. Mainoo hlýtur að velta þessu fyrir sér,“ sagði Neville.
Butt gekk enn lengra og sagði að Mainoo hefði átt að neita að spila gegn Frökkum, en meiðslin komu í veg fyrir að hann þyrfti að taka þá ákvörðun.
„Ég hefði einfaldlega neitað að spila ef ég væri Mainoo. Ég hefði sagst vera meiddur. Þetta er bullleikur, sérstaklega eftir meðferðina sem hann hefur fengið.“
„Hann hefur ekki spilað eina mínútu á mótinu og á svo allt í einu að byrja tilgangslausan leik sem er lítið annað en upphafinn æfingaleikur, þar sem hann gæti meiðst og misst af öllu tímabilinu. Ekki séns,“ sagði Butt.