Fotbolti.net
19.08.12 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Marquinhos kominn til Roma (Staðfest)

Marquinhos gengur til liðs við Roma sem vonast til að ná betri árangri en í fyrra.

Marquinhos gengur til liðs við Roma sem vonast til að ná betri árangri en í fyrra.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski miðvörðurinn Marquinhos er genginn til liðs við Roma á lánssamning sem kostar félagið eina og hálfa milljón evra. Leikmaðurinn kemur frá brasilíska félaginu Corinthians.

Það er klásúla í samningnum þess efnis að ítalska félagið getur keypt leikmanninn á þrjár og hálfa milljónir evra til viðbótar eftir að tímabilinu lýkur.
Marquinhos fór með brasilíska U23 ára landsliðinu á Ólympíuleikana í sumar en hann er aðeins átján ára gamall og heitir fullu nafni Marcos Aoas Correa.

Það er búið að ganga frá samning Marquinhos ef hann verður keyptur að tímabili loknu, en hann mun þá skrifa undir fimm ára samning við félagið sem varir til júní 2018.

Athugið að ekki má rugla Marquinhos saman við Marquinho, brasilískan miðjumann sem kom til Roma í janúar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.