19.08.12 - 14:00
Brynjar Ingi Erluson
Kevin Mirallas til Everton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Everton hefur fest kaup á belgíska framherjanum Kevin Mirallas frá Olympiakos.
Mirallas, sem er 24 ára gamall gekkst undir læknisskoðun og skrifaði undir fjögurra ára samning við enska félagið, en kaupverðið er talið nema um 6 milljónir punda.
Nokkur lið voru á eftir belgíska framherjanum, en hann ákvað að velja Everton þar sem hann taldi meiri líkur á að hann fengi að spila þar.
Þetta eru þriðju kaup félagsins í sumar, en Everton hefur þegar fengið þá Steven Pienaar og Steven Naismith.

Heimild: Sky