Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
banner
   mán 19. ágúst 2019 20:26
Elvar Geir Magnússon
Rúnar Kristins: Fegurðin gefur þér ekki alltaf árangur
Rúnar Kristinsson.
Rúnar Kristinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR-ingar unnu 1-0 sigur gegn Víkingi Reykjavík í kvöld og eru komnir enn nær Íslandsmeistaratitlinum.

Lestu um leikinn: KR 1 -  0 Víkingur R.

„Við vorum varkárir í dag, vorum með tvo djúpa miðjumenn. Hafandi séð Víkinga vinna Blika þá sá maður hversu góðir þeir eru. Við ákváðum að vera varkárir í dag. Við höfum verið að fá mörg mörk á okkur í síðustu tveimur leikjum og þurftum að laga það," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR.

Hversu kærkomið var að taka sigur eftir að hafa tapað tveimur leikjum í röð?

„Þetta var ofboðslega mikilvægt. Við höfum aðeins misst fókusinn í leikjunum á undan. Við þurftum að rísa aftur upp á lappirnar. Við þurftum að fara í grunnvinnu sem lá í því að vera þéttir og forðast það að fá á okkur mark. Við gleymdum aðeins fegurðinni í fótboltanum því hún er ekki alltaf þannig að hún gefur þér árangur."

Í viðtalinu tjáir Rúnar sig meðal annars um meiðsli Kennie Chopart sem borinn var af velli á börum.


Slapp
banner
banner