Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 19. ágúst 2022 19:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarliðin í baráttunni um Kópavog: Óskar hristir vel upp í þessu
Gísli er fyrirliða Blika í kvöld.
Gísli er fyrirliða Blika í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Valur Jónsson.
Birkir Valur Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld mætast HK og Breiðablik í síðasta leiknum í átta-liða úrslit Mjólkurbikars karla.

Búið er að opinbera byrjunarliðin fyrir baráttuna um Kópavog.

Lestu um leikinn: HK 0 -  1 Breiðablik

HK gerir þrjár breytingar frá síðasta deildarleik sínum sem var 2-0 tap gegn Þór í Lengjudeildinni. Birkir Valur Jónsson er meiddur og er Bruno Soares í banni. Hassan Jalloh fer á bekkinn. Inn koma Bjarni Páll Linnet Runólfsson, Eiður Atli Rúnarsson og Teitur Magnússon.

Óskar Hrafn gerir fimm breytingar. Anton Ari, Damir, Gísli Eyjólfs, Jason Daði, Dagur Dan og Davíð Ingvars halda sæti sínu. Aðrir koma nýir inn.

Gísli er með fyrirliðabandið hjá Blikum í dag þar sem Höskuldur Gunnlaugsson byrjar á bekknum.

Leikurinn hefst klukkan 20:00 og er að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

Byrjunarlið HK:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
3. Ívar Orri Gissurarson
4. Leifur Andri Leifsson (f)
7. Örvar Eggertsson
8. Arnþór Ari Atlason
9. Oliver Haurits
10. Ásgeir Marteinsson
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson
16. Eiður Atli Rúnarsson
21. Ívar Örn Jónsson
24. Teitur Magnússon

Byrjunarlið Breiðabliks:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
11. Gísli Eyjólfsson (f)
13. Anton Logi Lúðvíksson
14. Jason Daði Svanþórsson
16. Dagur Dan Þórhallsson
19. Sölvi Snær Guðbjargarson
25. Davíð Ingvarsson
30. Andri Rafn Yeoman
67. Omar Sowe
Athugasemdir
banner