Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mið 19. september 2018 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Hlynur Guðmarsson tekur við kvennaliði Álftanes (Staðfest)
Ólafur Hlynur Guðmarsson tekur við kvennaliði Álftanes.
Ólafur Hlynur Guðmarsson tekur við kvennaliði Álftanes.
Mynd: Leiknir.com
Álftanes hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að búið sér að gera þjálfaraskipti í kvennaliði félagsins. Birgir Jónasson lætur af störfum og Ólafur Hlynur Guðmarsson tekur við.

Tilkynningin
Meistaraflokksráð og Birgir Jónasson núverandi þjálfari hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu að Birgir hætti þjálfun m.fl kv Álftanesi. og viljum við þakka honum samstarfið á liðnum árum.

Við Liðinu tekur Ólafur Hlynur Guðmarsson og mun hann stýra liðinu út næsta tímabil.. Ólafur er reynslumikill þjálfari og hefur þjálfað yngriflokka og mfl, bæði hér á landi og erlendis.

Álftanes er ríkjandi íslandsmeistari í futsal og endaði í 3 sæti íslandsmóts í 2 deild kvenna 2018.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner