Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 19. september 2019 16:30
Magnús Már Einarsson
Jói Berg orðinn heill - Óljóst hvort hann verði í hóp
Það mun ekki skýrast fyrr en skömmu fyrir leik Burnley og Norwich á laugardag hvort Jóhann Berg Guðmundsson verði í leikmannahópnum eða ekki.

Jóhann Berg meiddist á kálfa gegn Wolves í síðasta mánuði og hefur verið frá keppni síðan þá.

Hann missti meðal annars af landsleikjum Íslands gegn Moldavíu og Albaníu sem og af leik Burnley gegn Brighton um síðustu helgi.

Sean Dyche, stjóri Burnley, staðfesti á fréttamannafundi í dag að Jóhann sé orðinn heill heilsu.

Dyche ætlar hins vegar ekki að ákveða fyrr en rétt fyrir leik hvort hann taki Jóhann Berg strax aftur í leikmannahópinn um helgina eða bíði með það í einn leik.
Athugasemdir