Fotbolti.net
19.09.21 - 17:40
Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið Vals og KA: Hannes og Arnór Smárason koma inn

Hannes kemur aftur í markið hjá Val.

Hannes kemur aftur í markið hjá Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur og KA mætast í 21. umferð Pepsi Max-deildar karla klukkan 18:30 í kvöld en leikið er á Origo-vellinum að Hlíðarenda. Byrjunarliðin eru klár og þau má sjá hér að neðan.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 4 KA
Heimir Guðjónsson þjálfari Vals gerir þrjár breytingar á liðinu frá tapinu gegn Vestra í Mjólkurbikarnum á miðvikudaginn. Hannes Þór Halldórsson snýr aftur í markið og Sveinn Sigurður sest því á bekkinn.

Arnór Smárason og Orri Sigurður Ómarsson koma þá einnig inn í liðið.

Arnar Grétarsson þjálfari KA gerir tvær breytingar á sínu liði frá 2 - 0 sigri á Fylki á laugardaginn fyrir rúmri viku síðan.

Andri Fannar Stefánsson og Sveinn Margeir Hauksson fara á bekkinn en inn koma þeir Rodri og Sebastian Brebels.

Byrjunarlið Vals: Hannes, Rasmus, Birkir Már, Sebastian, Birkir, Arnór, Patrick, Kristinn, Sigurður, Tryggvi, Orri.

Byrjunarlið KA: Steinþór, Mark, Mikkel, Dusan, Rodri, Brebels, Hallgrímur, Ásgeir, Þorri, Jakob, Bjarni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.