Fotbolti.net
19.10.12 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Thomas Hitzlsperger til Everton (Staðfest)

Thomas Hitzlsperger til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Everton hefur gert samning við þýska miðjumanninn Thomas Hitzlsperger en samningurinn gildir út janúar.

Hitzlsperger hefur æft með Everton undanfarnar vikur og nú hefur hann fengið samning hjá félaginu.

Þessi þrítugi leikmaður skrifaði undir í morgun og verður í hópnum gegn QPR á sunnudag ef leikheimild berst í tæka tíð.
Hitzlsperger hefur gælunafnið ,,Der Hammer\" þar sem hann þykir afar skotfastur.

Hitzlsperger var síðasta á mála hjá Wolfsburg en hann hefur einnig leikið með Aston Villa, Stuttgart, Lazio og West Ham á ferli sínum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.