Fotbolti.net
19.11.26 - 17:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Emil Páls ekki áfram hjá Breiðabliki

Emil Páls ekki áfram hjá Breiðabliki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emil Pálsson verður ekki hluti af þjálfarateymi Jökuls Elísabetarsonar hjá Breiðabliki. Vísir greindi frá því fyrir skemmstu að Emil yrði ekki áfram hjá félaginu og Emil staðfestir tíðindin í samtali við Fótbolta.net. Óvíst er hvað hann tekur sér næst fyrir hendur.

Emil kom inn í þjálfarateymi Breiðabliks sem aðstoðarþjálfari liðsins undir lok tímabilsins 2025 þegar Ólafur Ingi Skúlason tók við þjálfun liðsins.

„Emil Pálsson hefur verið ráðinn sem afreksþjálfari elstu karlaflokka Breiðabliks. Hann mun hafa yfirumsjón með utanumhald, skipulagningu og þjálfun leikmanna í elstu flokkum félagsins. Hann mun einnig vera hluti af þjálfarateymi meistaraflokks karla," sagði í tilkynningu Breiðabliks fyrir 13 mánuðum síðan. Áður hafði Emil verið hluti af þjálfarateymi Heimis Guðjónssonar hjá FH.

Það er því ljóst að aðstoðarmenn Ólafs Inga Skúlasonar, sem stýrði Breiðabliki á liðnu tímabii, verða hvorugir áfram. Jón Guðni Fjóluson yfirgaf félagið á sama tíma og Ólafur og Emil er að segja skilið við félagið. Þá er markmannsþjálfarinn Haraldur Björnsson byrjaður að starfa fyrir Val.
Emil er fyrrum atvinnumaður, fæddur árið 1993 en þurfti að leggja skóna á hilluna 2022 eftir tvö hjartastopp.
Emil Páls ekki áfram hjá Breiðabliki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emil Páls ekki áfram hjá Breiðabliki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emil Páls ekki áfram hjá Breiðabliki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emil Páls ekki áfram hjá Breiðabliki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emil Páls ekki áfram hjá Breiðabliki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emil Páls ekki áfram hjá Breiðabliki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emil Páls ekki áfram hjá Breiðabliki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emil Páls ekki áfram hjá Breiðabliki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emil Páls ekki áfram hjá Breiðabliki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.