Fotbolti.net
19.11.26 - 17:17
Elvar Geir Magnússon

Frank segir mikla vinnu framundan - „Hef trú á strákunum“

Thomas Frank er tekinn við Crystal Palace.

Thomas Frank er tekinn við Crystal Palace.

Canon

Mynd: EPA

Danski þjálfarinn Thomas Frank var í vikunni ráðinn nýr stjóri Crystal Palace. Frank tekur við af Pierre Sage, sem var rekinn eftir aðeins sextán leiki í öllum keppnum á tímabilinu, en Palace er í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Thomas Frank tekinn við Palace (Staðfest)
TENGT EFNI

Thomas Frank tekinn við Palace (Staðfest)

„Hópurinn þarf að mínu mati, að endurheimta sjálfstraustið, trúna og orkuna. Ég og mitt teymi þurfum að leggja á okkur gríðarlega vinnu. Það eru góðir leikmenn til staðar en þeir þurfa að hafa trú á sjálfum sér," segir Frank, sem stýrði síðast Tottenham.

„Við fáum á okkur allt of mörg mörk, þannig að við þurfum að vinna í varnarleiknum, bæði hvað varðar skipulag og hugarfar. Við þurfum að bæta leik okkar í föstum leikatriðum, á báðum endum vallarins."

BBC greinir frá því að Palace sé að ráða Bernardo Cueva frá Chelsea til að sjá um föst leikatriði. Cueva starfaði með Frank hjá Brentford.

Fyrsti leikur Frank með stjórnartaumana hjá Palace verður útileikur gegn nýliðum Coventry á laugardag. Frank staðfesti að Takehiro Tomiyasu og Ismaila Sarr yrðu ekki með í leiknum.

„Ég get sagt að Tomiyasu snýr aftur til æfinga í næstu viku. Þetta eru nárameiðsli hjá Sarr svo við þurfum að fara varlega,“ sagði Frank á fréttamannafundi fyrir leikinn.

„Þetta verður erfiður leikur en ég hef mikla trú á strákunum. Ég veit að þeir munu standa sig á laugardaginn. Hlutirnir þurfa að falla með okkur."
Frank segir mikla vinnu framundan - „Hef trú á strákunum“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.