Fotbolti.net
19.11.26 - 13:31
Elvar Geir Magnússon

Mbeumo gagnrýndur fyrir að spila GTA 6 á miðnætti

Bryan Mbeumo er mikið fyrir tölvuspil.

Bryan Mbeumo er mikið fyrir tölvuspil.

Canon

Mynd: EPA

Bryan Mbeumo, framherji Manchester United, hefur sætt gagnrýni frá stuðningsmönnum eftir að hann beið til miðnættis eftir tölvuspili. Margir tölvuleikjaunnendur hafa beðið spenntir eftir útkomu tölvuleiksins Grand Theft Auto VI og Mbeumo er einn af þeim.

Kamerúnski landsliðsmaðurinn deildi mynd af upphafsskjá leiksins á Instagram-sögu sinni stuttu eftir miðnætti.

Færslan vakti fljótt athygli á netinu og sumir stuðningsmenn veltu fyrir sér hvort framherjinn ætti að eyða tíma í tölvuspil seint að kveldi þegar United er að búa sig undir mikilvægan leik gegn Liverpool á sunnudaginn. United situr í fallsæti og liðið fengið harða en verðskuldaða gagnrýni.

Færslan birtist sama dag og nýi stjórinn Mauricio Pochettino átti eftir að stýra sinni fyrstu æfingu á Carrington æfingasvæðinu eftir brottför Michael Carrick.

Hlaðvarpsstjórnandinn Mark Goldbridge var meðal þeirra sem gagnrýndu Mbeumo og segir að úrvalsfótboltamenn ættu að viðhalda ströngum svefnvenjum.



Mbeumo gagnrýndur fyrir að spila GTA 6 á miðnætti
Canon

Mynd: GTA 6

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.