Fotbolti.net
19.11.26 - 16:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Svona verður 15. Bose mótið

Víkingur vann mótið í annað sinn í röð síðasta vetur.

Víkingur vann mótið í annað sinn í röð síðasta vetur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Bose bikarinn verður haldinn í fimmtánda sinn í vetur. Sex lið taka þátt og flautað verður til leiks laugardaginn 5. desember. Þá sækja ríkjandi meistarar í Víkingi lið Stjörnunnar heim, en þau lið mættust í úrslitaleik síðasta móts í mars á þessu ári.

Sex lið taka þátt í mótinu og eru þau í öll í Bestu deildinni, þar á meðal eru báðir nýliðarnir: Þróttur og Afturelding.

Bose bikarinn hefur fyrir löngu stimplað sig inn sem eitt öflugasta undirbúningsmót vetrarins hjá liðunum í efstu deild. Mótið hóf göngu sína árið 2012 og hefur verið fastur liður á undirbúningstímabilinu síðan.

Víkingur er ríkjandi meistari eftir 3–1 sigur á Stjörnunni í úrslitaleiknum sem fram fór í Miðgarði 21. mars síðastliðinn og hefur nú unnið mótið tvö ár í röð. Liðin mætast strax í fyrsta leik mótsins í ár, þannig að Garðbæingar fá tækifæri til að hefna sín strax á fyrsta degi.

„Það er ótrúlega gaman að halda Bose bikarinn í fimmtánda sinn. Mótið er orðið fastur hluti af undirbúningi liðanna og í ár fáum við flotta blöndu af liðum. Ekki skemmir fyrir að byrja á endurtekningu á úrslitaleiknum frá því í vor," segir Ágúst Gylfason sem er stofnandi mótsins og vörustjóri hjá Ofar.
Riðill 1
Þróttur, ÍA og KR.

14:00 6. des Þróttur - ÍA (Pepsi völlurinn)
14:00 12. des Þróttur - KR (Pepsi völlurinn)
12:00 19. des KR - ÍA (Meistaravellir)

Riðill 2
Stjarnan, Víkingur og Afturelding.

12:00 5. des Stjarnan - Víkingur (Samsungvöllurinn)
12:00 12. des Víkingur - Afturelding (Víkingsvöllur)
11:00 19. des Afturelding - Stjarnan (Varmárvöllur)
Stígur Diljan var valinn maður leiksins í úrslitaleiknum síðasta vetur.

Stígur Diljan var valinn maður leiksins í úrslitaleiknum síðasta vetur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ágúst Gylfason er stofnandi mótsins.

Ágúst Gylfason er stofnandi mótsins.

Canon

Mynd: Ofar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.