Fotbolti.net
19.12.17 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Pétur Heiðar og Kristján Atli áfram hjá Magna (Staðfest)

Kristján Atli Marteinsson.

Kristján Atli Marteinsson.

Canon

Mynd: Magni

Magni frá Grenivík var að semja við tvo leikmenn fyrir komandi leiktíð í Inkasso-deildinni. Það eru þeir Pétur Heiðar Kristjánsson og Kristján Atli Marteinsson sem kemur frá Fram.
Pétur Heiðar er fæddur 1982 og kom til Magna frá KA fyrir síðasta tímabil. Hann skoraði fjögur mörk í nítján leikjum í 2. deildinni á liðnu sumri þegar Magni hafnaði í öðru sæti og vann sér inn sæti í Inkasso-deildinni.

Kristján Atli er 21 árs og hefur undanfarin tvö tímabil verið hjá Magna á lánssamningi frá Fram en hann skoraði fimm mörk í nítján leikjum síðasta tímabil.

Það er mikill hugur í Magnamönnum fyrir komandi tímabil en þeir kynntu þrjá nýja leikmenn með ansi skemmtilegum hætti á dögunum.
Pétur Heiðar.

Pétur Heiðar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.