Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 20. janúar 2020 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Kompany húðskammaði stuðningsmenn Anderlecht
Vincent Kompany
Vincent Kompany
Mynd: Getty Images
Vincent Kompany, spilandi þjálfari Anderlecht í Belgíu, kom Simon Mignolet til varnar í 2-1 tapinu gegn Club Brugge í belgísku deildinni í gær.

Mignolet var að undirbúa sig undir að taka markspyrnu er stuðningsmenn Anderlecht köstuðu flugeldum í átt að honum.

Mignolet var brugðið en Kompany, sem er spilandi þjálfari Anderlecht, var misboðið og ræddi hann við stuðningsmennina og bað þá vinsamlegast um að hætta þessu.

Hægt er að sjá myndbandið af þessu hér fyrir neðan en ljóst er að Kompany var ekki skemmt.


Athugasemdir
banner
banner
banner