Fotbolti.net
20.01.21 - 23:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói útherji

Einn dekksti dagur í sögu Real Madrid

Einn dekksti dagur í sögu Real Madrid
Canon

Mynd: Getty Images

Spænska stórveldið Real Madrid tapaði gríðarlega óvænt fyrir Alcoyano í spænsku bikarkeppninni í kvöld.
Staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma. Alcoyano missti mann af velli með rautt spjald í framlengingunni en fimm mínútum eftir það skoruðu þeir sigurmarkið í leiknum.

Colin Millar, fjölmiðlamaður og rithöfundur sem fylgist vel með spænskum fótbolta, segir að þetta sé ein stærsta niðurlæging í sögu Real Madrid.

„Þetta er með óvæntustu úrslitum í sögu spænska fótboltans," skrifaði Millar á Twitter í kvöld en Alcoyano er í C-deild spænska boltans.

„Til að setja þetta í samhengi þá tapaði Alcoyano - sem vann Real Madrid þrátt fyrir rautt spjald og þrátt fyrir að vera með 41 gamlan markvörð - fyrir varaliði Villarreal 3-0 í nóvember. Þetta er einn dekksti dagur í sögu Real Madrid. Það verður talað um þessa niðurlægingu í mörg ár."

Aftur á móti þá er þetta líklega einn besti dagur í sögu Alcoyano.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.