Fotbolti.net
20.01.21 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Özil fer í læknisskoðun á föstudag

Mesut Özil við komuna til Tyrklands í vikunni.

Mesut Özil við komuna til Tyrklands í vikunni.

Canon

Mynd: Getty Images

Mesut Özil fer á föstudag í læknisskoðun hjá Fenerbahce og gengur þá loksins frá félagaskiptum sínum til tyrkneska liðsins.

Özil flaug til Tyrklands á sunnudaginn en fór í sóttkví og mun geta farið í læknisskoðun á á föstudag.
Özil var á 350 þúsund pundum í vikulaun hjá Arsenal en mun fá 67.300 á viku hjá tyrkneska félaginu.

„Ég er mjög spenntur því ég hef alltaf verið stuðningsmaður Fenerbahce. Draumar mínir eru að rætast," sagði Özil þegar hann kom til Tyrklands.

Özil hefur verið úti í kuldanum hjá Arsenal og var ekki valinn í úrvalsdeildarhóp félagsins fyrir þetta tímabil en hélt þó áfram æfingum með aðalliðinu. Özil yfirgefur Arsenal eftir að hafa spilað 254 leiki fyrir félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.