Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 20. janúar 2022 22:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alexander-Arnold ber höfuð og herðar yfir aðra leikmenn
Trent Alexander-Arnold.
Trent Alexander-Arnold.
Mynd: Getty Images
Trent Alexander-Arnold lagði upp bæði mörk Liverpool þegar liðið lagði Arsenal að velli í undanúrslitum enska deildabikarsins í kvöld.

Liverpool tók forystuna í leiknum með sinni fyrstu tilraun. Alexander-Arnold kom boltanum áleiðis á portúgalska framherjann Diogo Jota, sem sá um rest og skoraði.

Jota gerði sitt annað mark á 77. mínútu eftir frábæra sendingu frá Alexander-Arnold. Sendingin var stórkostleg og afgreiðslan var ekki síðri.

Hægt er að sjá seinna mark Liverpool með því að smella hérna.

Alexander-Arnold ber höfuð og herðar yfir aðra leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar þegar kemur að stoðsendingum. Hann er búinn að leggja upp 14 mörk í öllum keppnum á þessu tímabili. Enginn annar leikmaður úr deild þeirra bestu á Englandi hefur lagt upp meira en tíu mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner