Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 20. janúar 2022 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hannah Cade í Tindastól (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tindastóll hefur samið við Hönnuh Jane Cade um að leika með liðinu á næsta tímabili.

Hannah er 24 ára bandarískur miðjumaður og er væntanleg á Sauðárkrók eftir um mánuð.

Hún lék með Fram á síðasta tímabili og skoraði fjögur mörk í tólf leikjum í 2. deild.

„Hannah er fjölhæfur miðjumaður sem getur einnig leyst fleiri stöður á vellinum. Hannah er frábær karakter og góður liðsmaður sem við væntum mjög mikils af,” segir Donni, aðalþjálfari meistaraflokka Tindastóls.

Hannah var valin besti leikmaður Fram ásamt því að vera i liði ársins i 2. deild. Áður en Hannah kom til Íslands spilaði hún stórt hlutverk í sterku liði i háskólaboltanum i USA.

„Við hlökkum mikið til að fá hana til okkar í febrúar og gerum ráð fyrir því að hún muni hafa góð áhrif á liðið að öllu leyti," bætti Donni við.
Athugasemdir
banner
banner
banner