Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fim 20. janúar 2022 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Leigutímar í knatthúsum FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skessan er yfirbyggt knattthús í fullri stærð. Húsið er ekki upphitað en klætt með dúki og því afbragðsgott að stunda þar æfingar í skjóli frá veðri og vindum. Skessan hentar fyrir æfingaleiki, viðburði og æfingar hjá stærri hópum. Leigutímar eru umsemjanlegir innan opnunartíma Kaplakrika.

RISINN
Risinn er yfirbyggt knatthús á stærð við hálfan knattspyrnuvöll. Húsið er ekki upphitað en er klætt með dúki og því mjög gott að stunda æfingar þar inni í skjóli. Stærðin á knattspyrnuvellinum hentar mjög vel fyrir flesta hópa.

Útleigutímarnir eru frá 19:00 – 23:00 alla virka daga og frá kl 19:00 – 23:00 á sunnudögum, klst hver tími. Einnig eru lausir hádegistímar á virkum dögum og hafa þeir verið vinsælir hjá fyrirtækjum og skólum.

Leigugjald
10.00 kr fyrir hálfan völl
14.000 kr fyrir heilan völl

DVERGURINN
Dvergurinn er yfirbyggt knatthús 51*25 á stærð. Í húsinu verður ylur en ekki fullt hitað. Húsið er eins og Risinn klætt með dúk og því mjög gott stunda æfingar þar í skjóli. Stærðin á húsinu hentar vel fyrir hópa, æfingar og ýmis önnur tækifæri.

Útleigutímar eru:
Virkir dagar frá kl 20:00 til 23:00
Laugardagar frá kl 13:00-18:00
Sunnudagar frá 13:00 til 23:00

Leigugjald
12.000 kr. fyrir hverja klst.

Til að fá frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband í gegnum [email protected]
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner