Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 20. janúar 2023 20:37
Brynjar Ingi Erluson
Halli Hróðmars ráðinn aðstoðarþjálfari ÍA (Staðfest)
Mynd: ÍA
Haraldur Árni Hróðmarsson er nýr aðstoðarþjálfari ÍA en þetta kemur fram í tilkynningu frá Skagamönnum í dag.

Haraldur er með mikla reynslu úr þjálfun en hann var meðal annars yfirþjálfara yngri flokka hjá Þrótti frá 2016 til 2018 og þjálfaði 4. deildarlið SR áður en hann fór í Val.

Síðustu ár hefur hann verið bæði aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar og Ólafs Jóhannessonar, en yfirgaf félagið eftir tímabilið.

Hann var ekki lengi að finna sér nýtt starf en hann hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns Þórs Haukssonar hjá ÍA.

Haraldur verður einnig teymisstjóri ellefu manna bolta hjá 2. - 4. flokki karla- og kvenna.
Athugasemdir
banner
banner