Albert Guðmundsson er í liði helgarinnar á Ítalíu eftir frammistöðu sína í mikilvægum sigri Genoa gegn Brescia í ítölsku B-deildinni um liðna helgi.
Genoa er í öðru sæti deildarinnar með 56 stig eftir 30 umferðir en liðið er í mikilli baráttu um að komast í deild þeirra bestu á Ítalíu á nýjan leik.
Genoa er í öðru sæti deildarinnar með 56 stig eftir 30 umferðir en liðið er í mikilli baráttu um að komast í deild þeirra bestu á Ítalíu á nýjan leik.
Albert skoraði tvö og lagði upp eitt í leiknum en hann hefur fengið mikið hrós í ítölskum fjölmiðlum fyrir frammistöðu sína á tímabilinu.
Hann er í liði helgarinnar en liðið má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.
Albert er þó ekki í landsliðinu að þessu sinni en hann og Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, hafa ekki verið að ná vel saman. Íslenska liðið undirbýr sig núna fyrir fyrstu leiki sína í undankeppni EM 2024.
Sjá einnig:
„Í liði Genoa er það Albert Guðmundsson"
Athugasemdir