Fotbolti.net
20.03.26 - 19:08
Ívan Guðjón Baldursson
Kjarninn

Byrjunarlið Bournemouth og Man Utd: Sesko áfram á bekknum

Byrjunarlið Bournemouth og Man Utd: Sesko áfram á bekknum
Canon

Mynd: EPA

Bournemouth og Manchester United eigast við í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Andoni Iraola gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu sem gerði markalaust jafntefli við Burnley í síðustu umferð. Bournemouth er búið að gera fjögur jafntefli í röð í úrvalsdeildinni á meðan Man Utd er á flottu skriði með þrjá sigra í síðustu fjórum leikjum.

Bakvörðurinn Álex Jiménez kemur inn í byrjunarliðið ásamt Amine Adli. Þeir taka stöður Adam Smith og Eli Junior Kroupi í liðinu.

Michael Carrick teflir fram sama byrjunarliði og hafði betur gegn Aston Villa um síðustu helgi.

Benjamin Sesko þarf að sætta sig við áframhaldandi bekkjarsetu þrátt fyrir að vera búinn að skora 8 mörk í síðustu 10 leikjum - yfirleitt komandi inn af bekknum.

Bryan Mbeumo er fremsti sóknarmaður með Matheus Cunha og Amad Diallo á köntunum.

Bournemouth: Petrovic; Alejandro Jiménez, Hill, Senesi, Truffert; Scott, Christie; Adli, Tavernier, Rayan; Evanilson.
Varamenn: Mandas, Brooks, Gannon-Doak, Smith, Diakite, Kroupi, Ünal, Tóth, Milosavljevic

Man Utd: Lammens, Dalot, Yoro, Maguire, Shaw, Casemiro, Mainoo, Diallo, Fernandes, Cunha, Mbeumo
Varamenn: Bayindir, Fredricson, Heaven, Malacia, T. Fletcher, Mount, Ugarte, Sesko, Zirkzee.
Byrjunarlið Bournemouth og Man Utd: Sesko áfram á bekknum
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.