Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 22:02
Ívan Guðjón Baldursson
England: Mikil dramatík í fjörugu jafntefli
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Bournemouth 2 - 2 Manchester Utd
0-1 Bruno Fernandes ('61 , víti)
1-1 Ryan Christie ('67 )
1-2 James Hill ('71 , sjálfsmark)
2-2 Eli Kroupi ('81 , víti)
Rautt spjald: Harry Maguire, Manchester Utd ('78)

Bournemouth og Manchester United áttust við í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og úr varð afar spennandi slagur.

Fyrri hálfleikurinn var opinn og skemmtilegur þar sem bæði lið fengu góð færi til að skora. United fékk fleiri og betri færi en boltinn rataði ekki í netið svo staðan var markalaus í leikhlé.

Í síðari hálfleik var leikurinn áfram hraður og skemmtilegur en liðin gáfu ekki mikið af færum á sér. Þó tókst leikmönnum að skora fjögur mörk.

Bruno Fernandes náði forystunni með marki úr vítaspyrnu á 61. mínútu eftir klaufalegt brot hjá Álex Jiménez á Matheus Cunha innan eigin vítateigs.

Rauðu djöflarnir vildu fá aðra vítaspyrnu skömmu síðar en fengu ekki og þess í stað ruku heimamenn upp í skyndisókn og skoraði Ryan Christie með snyrtilegri afgreiðslu við vítateigslínuna.

Adrien Truffert vinstri bakvörður Bournemouth var heppinn að fá ekki dæmda vítaspyrnu á sig þegar hann lagði báðar hendur á Amad Diallo sem datt til jarðar innan vítateigs. Christie skoraði beint í kjölfarið af þessu atviki og ákvað VAR-teymið ekki að skerast í leikinn.

Skömmu síðar skallaði James Hill hornspyrnu frá Bruno Fernandes í eigið net svo Man Utd náði forystunni á nýjan leik.

Það var mikið fjör á lokakaflanum og fengu heimamenn dæmda vítaspyrnu þegar Harry Maguire gerðist brotlegur sem aftasti varnarmaður innan teigs. Stuart Attwell dómari dæmdi vítaspyrnu og rautt spjald og skoraði Junior Eli Kroupi af punktinum.

Tíu leikmenn Man Utd héldu áfram að berjast eins og ljón. Bætt var níu mínútum við venjulegan leiktíma en Bournemouth tókst ekki að nýta liðsmuninn til að stela sigri.

Lokatölur urðu því 2-2 eftir flotta frammistöðu hjá báðum liðum.

Man Utd er í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar með 55 stig eftir 31 umferð.

Bournemouth var að gera fimmta jafnteflið sitt í röð og siglir lygnan sjó um miðja deild, með 42 stig. Lærlingar Andoni Iraola geta ennþá reynt að gera atlögu að evrópusæti.
Athugasemdir
banner