England er að fara að mæta Úrúgvæ og Japan í vináttulandsleikjum í komandi glugga og Thomas Tuchel valdi stóran 35 manna hóp fyrir verkefnið.
Tveir leikmenn í hópnum eiga ekki landsleik en það eru James Garner, miðjumaður Everton, og Jason Steele, varamarkvörður Brighton.
Tveir leikmenn í hópnum eiga ekki landsleik en það eru James Garner, miðjumaður Everton, og Jason Steele, varamarkvörður Brighton.
Valið á Steele kemur mjög á óvart en hann er 35 ára og hefur verið að spila bikarleikina fyrir Brighton.
Tuchel hyggst taka hann með á HM í sumar en þá bara sem æfingamarkvörð, hann verður ekki hluti af skráðum leikmannahópi.
Það er ýmislegt áhugavert í landsliðsvali Tuchel. Þar á meðal er sóknarmaðurinn Dominic Calvert-Lewin hjá Leeds valinn en hann spilaði síðast fyrir landsliðið 2021.
England mætir Úrúgvæ 27. mars og Japan 31. mars. Báðir leikirnir verða spilaðir á Wembley.
Viðbrögð Garner við valinu:
???????????????????????????? Instant reaction with James Garner following his @England call-up. pic.twitter.com/DtjIWom2Bx
— Everton (@Everton) March 20, 2026
Athugasemdir

