Fotbolti.net
20.03.26 - 18:40
Ívan Guðjón Baldursson

Í samningaviðræðum við Maguire og Mainoo

Í samningaviðræðum við Maguire og Mainoo
Canon

Mynd: EPA

Harry Maguire og Kobbie Mainoo hafa verið að spila mjög vel með Manchester United upp á síðkastið og er félagið í samningaviðræðum við báða leikmenn sem voru valdir í enska landsliðshópinn á dögunum.
Maguire er 33 ára miðvörður sem á aðeins nokkra mánuði eftir af samningi við Man Utd. Hann er í viðræðum um eins árs framlengingu sem gildir til sumarsins 2027.

Mainoo er aðeins tvítugur og með rétt rúm tvö ár eftir af samningi. Hann var óhamingjusamur hjá United undir stjórn Rúben Amorim en Michael Carrick bráðabirgðaþjálfari hefur miklar mætur á miðjumanninum.

Mainoo hefur staðið sig vel frá því að Carrick tók við og dreymir ungstirnið um að komast með Englandi á lokamót HM.

David Ornstein hjá The Athletic segir að samkomulag United við Maguire sé í höfn og það eigi einungis eftir að fínpússa nokkur smáatriði áður en hægt verður að skrifa undir.

Fabrizio Romano segir frá viðræðunum við Mainoo sem eru einnig komnar langt á leið.

Sky Sports tekur undir fréttaflutninginn og segir að samkvæmt sínum heimildarmönnum munu báðir leikmenn skrifa undir nýja samninga á næstu vikum.

Maguire snýr aftur í enska landsliðið - Mainoo líka í hópnum
TENGT EFNI

Maguire snýr aftur í enska landsliðið - Mainoo líka í hópnum

Í samningaviðræðum við Maguire og Mainoo
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.