Fotbolti.net
20.03.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Ísland í dag - Stjarnan mætir Blikum í undanúrslitum

Ísland í dag - Stjarnan mætir Blikum í undanúrslitum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er mikið magn af leikjum framundan í íslenska boltanum þessa helgina þar sem Lengjubikarinn er í fullu fjöri og Mjólkurbikarinn er kominn af stað.
Hér fyrir neðan má sjá leikina sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið í kvöld, en þeir eru tíu talsins.

Stærsti leikur kvöldsins fer fram í Miðgarði þegar Stjarnan mætir Breiðabliki í undanúrslitum Lengjubikars kvenna. Sigurvegarinn mætir annað hvort Þrótti eða Víkingi í úrslitaleiknum.

Smári spilar þá við Aftureldingu í C-deild kvenna og eru hinir átta leikirnir allir í Mjólkurbikar karla.

Fjörið þar hefst klukkan 18:00 þegar Magni kíkir í heimsókn til Dalvíkur.

Tindastóll, KV, Léttir og KÁ eru einnig meðal liða sem eiga heimaleiki í bikarnum.

Lengjubikar kvenna - A deild, undanúrslit
18:00 Stjarnan - Breiðablik (Miðgarður)

Lengjubikar kvenna - C deild, riðill 2
21:00 Smári - Afturelding (Egilshöll)

Mjólkurbikar karla
21:00 Dalvík/Reynir - Magni (Boginn)
19:00 KV - KB (KR-völlur)
19:00 BF 108 - Afríka (Víkingsvöllur)
19:00 Léttir - Stokkseyri (ÍR-völlur)
19:00 KÁ - Selfoss (Knatthús Hauka)
20:00 Ýmir - Fálkar (Kórinn)
20:00 Uppsveitir - Augnablik (JÁVERK-völlurinn)
Ísland í dag - Stjarnan mætir Blikum í undanúrslitum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.