Fotbolti.net
20.03.26 - 10:57
Elvar Geir Magnússon

Staðfestir að Salah fer ekki með til Brighton

Mohamed Salah.

Mohamed Salah.

Canon

Mynd: EPA

Mohamed Salah verður ekki með Liverpool þegar liðið heimsækir Brighton í hádegisleiknum á morgun. Flautað verður til leiks 12:30 á Amex leikvangnum.
Jakob Gunnar spáir í leiki helgarinnar á Englandi
TENGT EFNI

Jakob Gunnar spáir í leiki helgarinnar á Englandi

„Hann verður ekki klár fyrir morgundaginn," segir Arne Slot, stjóri Liverpool en Salah glímir við vöðvameiðsli.

„Góðu fréttirnar fyrir Liverpool eru að það er landsleikjagluggi að koma en vondu fréttirnar fyrir hann eru að hann getur ekki verið með landsliðinu sínu."

„Hann hefur sýnt það áður að hann er fljótari að jafna sig en aðrir leikmenn. Hann hugsar svo vel um skrokkinn. En það eru bara tvær vikur í að við hittumst aftur, vonandi nær hann að jafna sig fyrir það."

Salah skoraði glæsilegt mark í 4-0 sigrinum gegn Galatasaray í Meistaradeildinni í vikunni en klúðraði líka vítaspyrnu í leiknum.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.