Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 21:17
Ívan Guðjón Baldursson
Stefán Teitur lagði upp sigurmarkið
Mynd: Hannover 96
Mynd: Triestina
Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins í Evrópu þar sem Stefán Teitur Þórðarson var í byrjunarliði Hannover og lagði upp eina mark leiksins í næstefstu deild í Þýskalandi.

Stefán Teitur átti mjög góðan leik og gaf frábæra fyrirgjöf sem Maik Nawrocki stangaði í netið af auðveldu færi.

Stefán lék allan leikinn í 1-0 sigri gegn Braunschweig. Hannover er í þriðja sæti eftir sigurinn, aðeins tveimur stigum frá toppliði Schalke sem á þó leik til góða. Aðeins þrjú stig skilja fimm efstu lið deildarinnar að í afar spennandi toppbaráttu.

Í sömu deild fékk Brynjar Ingi Bjarnason að spila síðustu mínúturnar í tapi hjá Greuther Fürth. Brynjar og félagar eru þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið þökk sé góðu gengi síðustu vikna.

Í þriðju efstu deild á Ítalíu lék Kristófer Jónsson allan leikinn í jafntefli hjá Triestina, sem er afar skammt frá því að falla niður í D-deildina.

Á Spáni fékk Sigurður Bjartur Hallsson að spila síðustu tíu mínúturnar í jafntefli hjá AD Mérida sem leikur í þriðju efstu deild. Sigurður Bjartur og félagar gerðu jafntefli við varalið Athletic Bilbao og eru einu stigi frá umspilssæti fyrir næstefstu deild.

Daníel Tristan Guðjohnsen byrjaði á bekknum í jafntefli hjá Malmö í æfingaleik á meðan Helgi Fróði Ingason sat allan tímann á bekknum í jafntefli hjá Helmond í næstefstu deild í Hollandi.

Hannover 1 - 0 Braunschweig

Karlsruher 3 - 1 Greuther Furth

Trento 2 - 2 Triestina

Athletic Bilbao B 1 - 1 AD Merida

Malmö 1 - 1 Kalmar

Roda 1 - 1 Helmond

Athugasemdir
banner