Fotbolti.net
20.03.26 - 15:21
Elvar Geir Magnússon

Trafford verður í marki City í úrslitaleiknum

Trafford verður í marki City í úrslitaleiknum
Canon

Mynd: EPA

Pep Guardiola stjóri Manchester City hefur staðfest að James Trafford verði í markinu í úrslitaleik deildabikarsins gegn Arsenal á sunnudaginn.

Trafford hefur verið í marki City í öllum umferðum keppninnar til þessa og mun líka standa vaktina í úrslitaleiknum. Gianluigi Donnarumma er aðalmarkvörður liðsins.
England um helgina - Toppliðin mætast í úrslitaleik
TENGT EFNI

England um helgina - Toppliðin mætast í úrslitaleik

Trafford hefur spilað í bikarnum og hefur lýst því yfir að hann sé svekktur yfir því að hafa ekki spilað enn meira.

„Það er gott. Ekkert meira að segja. Leikmenn geta verið ánægðir eða óánægðir," segir Guardiola.

Hann segist mjög ánægður með hvernig Trafford hefur verið að spila í þeim leikjum sem hann hefur fengið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.