Fotbolti.net
20.03.26 - 15:38
Elvar Geir Magnússon

Vicario fer í aðgerð í næstu viku

Guglielmo Vicario.

Guglielmo Vicario.

Canon

Mynd: EPA

Guglielmo Vicario markvörður Tottenham mun gangast undir aðgerð vegna kviðslits eftir helgi en mun þó spila í fallbaráttuslagnum mikilvæga gegn Nottingham Forest á sunnudaginn.

Aðgerðin er tímasett svo hún hafi sem minnst áhrif á tímabil Tottenham en stefnt er að því að hann snúi aftur innan fjögurra vikna.
Vicario opinn fyrir því að snúa aftur til Ítalíu
TENGT EFNI

Vicario opinn fyrir því að snúa aftur til Ítalíu

Nú er að taka við landsleikjagluggi og svo verður bikarhelgi svo Tottenham spilar ekki leik í þrjár vikur.

Eftir leikinn á sunnudag spilar Tottenham ekki fyrr en 12. apríl, gegn Sunderland í úrvalsdeildinni.

Igor Tudor, bráðabirgðastjóri Tottenham, sagði annars frá því á fréttamannafundi í dag að líklegt væri að James Maddison, sem hefur verið frá síðan hann sleit krossbönd á undirbúningstímabilinu, spili áður en tímabilinu lýkur.

Þá greindi hann frá því að Dominic Solanke ætti að snúa aftur til æfinga á morgun og ætti að geta verið með gegn Forest. Joao Palhinha er kominn aftur til æfinga og þá ætti Mohammed Kudus að snúa til baka meðan landsleikjaglugginn er.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.