Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 20. maí 2021 21:33
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Diego spilaði í tapi Oviedo
Diego spilaði með Oviedo í kvöld
Diego spilaði með Oviedo í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Diego Jóhannesson var í byrjunarliði Real Oviedo sem tapaði fyrir Rayo Vallecano í kvöld, 4-1.

Íslenski hægri bakvörðurinn spilaði lítið fyrri hluta tímabilsins en hefur spilað sex leiki frá því í mars.

Hann var í byrjunarliðinu í kvöld og spilaði allan leikinn en Oviedo á ekki lengur möguleika á að komast í umspilið.

Diego hefur spilað 9 leiki í deild- og bikar á tímabilinu, skorað eitt og lagt upp eitt.

Oviedo er í 12. sæti deildarinnar með 40 stig.
Athugasemdir
banner
banner