Það er mjög áhugaverður leikur í Pepsi Max-deildinni í kvöld þegar Breiðablik fær FH í heimsókn á Kópavogsvöll.
Fyrir utan tímabilið 2014, þar sem Stjarnan varð Íslandsmeistari, þá hafa FH, KR og Valur unnið níu Íslandsmeistaratitla á milli sín síðustu tíu árin.
Frá því að Óskar Hrafn Þorvaldsson tók við Breiðablik hefur ekki gengið vel hjá þeim grænklæddu í þessum svokölluðu stóru leikjum gegn FH, KR og Val.
Óskar Hrafn tók við Blikum fyrir síðustu leiktíð, en honum hefur ekki enn tekist að stýra Breiðablik til sigurs gegn FH, KR eða Val. Í átta deildarleikjum gegn þessum liðum hefur Breiðablik gert tvö jafntefli og tapað sex leikjum.
Breiðablik mætir FH í kvöld en það hefur líklega aldrei verið betra tækifæri fyrir Blika að vinna leik gegn þessum þremur liðum; FH hefur gengið afar illa að undanförnu.
„Ef Blikar vinna ekki í dag, hvað og hvenær ætla þeir þá að vinna eitthvað af þessum stórliðum. FH eru komnir aftur í rosa vont mót," sagði Tómas Þór Þórðarson í útvarpsþættinum í gær.
„Ég átta mig ekki alveg á FH," sagði Benedikt Bóas Hinriksson, en fyrir mót hætti Eiður Smári Guðjohnsen með liðið til að taka við sem aðstoðarþjálfari landsliðsins.
FH er í sjötta sæti með 11 stig. „Þeir voru á einhverri vegferð með Eið og Loga. Þeir töluðu allir um það og við sáum það á vellinum. Nú eru þeir orðnir aftur 2019 Óla Kristjáns FH. Mér finnst Guðmann og Gummi Kristjáns ekkert geta í miðverðinum... Hörður Ingi er slakur, Hjörtur Logi kemst varla í liðið, Björn Daníel hvað og hvar er hann, Steven Lennon fór úr því að vera besti leikmaður Íslandsmótsins í topp fimm lélegasti framherjinn í deildinni. Ég veit ekki hvort það sé honum að kenna eða fótboltanum sem þeir eru að spila," sagði Tómas.
Leikur FH hefur hrunið á síðustu mánuðum en alla umræðuna má hlusta á hér að neðan.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 í kvöld og er auðvitað í beinni textalýsingu á Fótbolta.net.
Athugasemdir