Fotbolti.net
20.08.12 - 12:00
Daníel Freyr Jónsson

Josh McEachran til Middlesbrough (Staðfest)

Josh McEachran.

Josh McEachran.

Canon

Mynd: Getty Images

Middlesbrough hefur fengið miðjumanninn Josh McEachran frá Chelsea á láni út tímabilið.
McEachran er 19 ára gamall og þykir hann mikið efni. Á seinni part síðustu leiktíðar lék hann með Swansea á láni.

Hann hefur lítið fengið að spreyta sig með aðalliði Chelsea en hefur þó leikið 20 aðalliðsleiki með liðinu.

Nokkur lið úr Championship-deildinni voru á eftir Englendinginum en á endanum var það Boro sem vann samkeppnina.

McEachran gæti verið í liði Boro strax á morgun þegar liðið mætir Burnley í deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.