20.08.12 - 18:30
Magnús Már Einarsson
Conor Sammon til Derby (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Derby hefur keypt framherjann Conor Sammon frá Wigan en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Sammon skrifaði undir fjögurra ára samning við Hrútana en frá þessu var greint í dag.

Sammon kom til Wigan frá Kilmarnock í janúar 2011 og skoraði eitt mark í 32 leikjum í ensku úrvalsdeildinni en í 23 af þessum leikjum kom hann inn á sem varamaður.
Nigel Clough, stjóri Derby, hafði áhuga á að fá Sammon til Derby á sínum tíma og hann hefur loksins krækt í leikmanninn.
,,Hann verður lykilmaður fyrir okkur og við vitum að hann getur skorað mörk þegar hann spilar reglulega,\" sagði Clough.

Heimild: Sky