20.08.12 - 15:59
Daníel Freyr Jónsson
Alex Song skrifaði undir til fimm ára hjá Barcelona (Staðfest)

Alexander Song er mættur til Barcelona.

Mynd: Getty Images

Alexander Song er mættur til Barcelona.

Mynd: Getty Images
Kamerúninn Alex Song er genginn í raðir Barcelona og skrifaði hann undir fimm ára samning í dag.
Song kemur frá Arsenal fyrir 19 milljónir evra, en þar lék hann 204 leiki á 7 árum. Áður hafði hann leikið með Bastia í Frakklandi, auk þess sem hann lék hluta úr tímabili með Charlton leiktíðina 2006-07.
Fyrr í dag stóðst þessi öflugi varnartengiliður læknisskoðun hjá Barcelona. Samningar milli liðana náðust um helgina.
Hjá spænska félaginu hittir hann fyrir sinn fyrrum samherja og fyriliða hjá Arsenal, Cesc Fabregas. Þeir tveir mynduðu saman sterka miðju á undangengnum tímabilum hjá félaginu.
Núna annar lykilleikmaður Arsenal á síðustu leiktíð farinn frá félaginu, en fyrir helgi var Robin van Persie seldur til Manchester United.