20.08.26 - 23:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sölvi axlar ábyrgð eftir slæmt tap: Nei nei nei, þeir eru ekki betri en við
Setur okkur í erfiða stöðu en engan veginn ógerlega
Auglýsing

Sölvi á hliðarlínunni í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi skoraði mark Víkings úr vítaspyrnu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi á hliðarlínunni í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn gegn Borac Banja Luka í umspilinu um sæti í Sambandsdeildinni í kvöld. Um fyrri leik liðanna var að ræða og unnu gestirnir frá Bosníu og Hersegóvínu 1-3 útisigur.
Víkingur þarf því að vinna upp tveggja marka forystu Borac í seinni leiknum ytra. Sá leikur fer fram eftir viku.

„Þetta var virkilega slakur fyrri hálfleikur, vorum seinir í öllum okkar aðgerðum. Krossarnir voru slakir og við vorum að drífa okkur alltof mikið. Við fáum á okkur klaufaleg mörk og gerum þetta rosalega erfitt fyrir okkur. Mér fannst viðbrögðin fín í seinni hálfleik, en síðan fáum við á okkur óheppnismark. Þetta setur okkur í erfiða stöðu en engan veginn ógerlega. Við sáum í dag að við getum gert miklu betur og við verðum að halda í vonina að geta snúið þessu við í seinni leiknm. Við erum heppnir að það er bara fyrri hálfleikurinn búinn."
„Nei nei nei, þeir eru ekki betri en við. Klaufalegt af okkur að gefa þeim þrjú mörk, þeir áttu ekki mikið af upphlaupum á okkur. Við vorum ekki nógu skarpir og einbeittir í okkar leik."
„Ég verð líka að taka ábyrgð á þessu að stilla strákana ekki rétt. Hvort það sé undirbúningurinn á æfingum, fundirnir eða hvað það er. Við þurfum að vera heiðarlegir við okkur og greina það sem fór úrskeiðis, tækla það og gera betur í seinni leiknum."
Skrítið að það sé í lagi inni í teig en ekki úti á velli
Víkingur skoraði eitt mark og það kom úr vítaspyrnu. Víkingar gerðu tilkall til fleiri vítaspyrna.
„Já, ég hefði viljað fá fleiri. Ég á eftir að skoða þessi atvik betur, en mér fannst þeir hanga í okkur í hornspyrnunum okkar og hæglega verið hægt að flauta meira á það. Svo er eitthvað brot út á miðjum velli þar sem við setjum hendurnar rétt á þá. Mér finnst skrítið að það megi hanga og tosa inni í teig en það er ekki í lagi úti á velli. Mér fannst línan skrítin í hornspyrnum okkar."
Vitum alveg virði keppninnar
Sölvi segir eðlilegt að menn séu svekktir í kvöld, menn eigi að vera svekktir. Nú séu menn með bakið upp við vegg og þurfi að gera betur í seinni leiknum.
Yrði það mikið högg að detta út úr Evrópu á þessu stigi?
„Já, við settum okkur markmið að komast inn í deildina. Það væri mikið högg að ná því ekki. Það er aldrei gott að ná ekki markmiðinum sem þú setur. Við vitum alveg virði þessarar keppni og hvað bíður okkar ef við komumst áfram," segir þjálfarinn.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum efst