Fotbolti.net
20.08.26 - 19:39
Brynjar Ingi Erluson

Evrópa: Tromsö hélt Brighton í skefjum - Elías Rafn hélt hreinu í sigri og frábær úrslit hjá Brann

Evrópa: Tromsö hélt Brighton í skefjum - Elías Rafn hélt hreinu í sigri og frábær úrslit hjá Brann
Canon

Mynd: EPA

Brighton þurfti að sætta sig við markalaust jafntefli gegn norska liðinu Tromsö í fyrri leik liðanna í umspili Sambandsdeildarinnar í kvöld.
Brighton var með mikla yfirburði en tókst ekki að nýta þá. Enska liðið átti 25 skottilraunir en aðeins sex þeirra rötuðu á markið.

Danski markvörðurinn Jakob Haugaard átti frábæran leik í marki Tromsö. Hann varði sex skot og fékk 8,3 í einkunn hjá Flashscore.

Bart Verbruggen þurfti þó einu sinni að taka á honum stóra þegar Heine Larsen slapp í gegn en skaut beint í markvörðinn. Tromsö fékk annað gott færi þegar Isak Vadebu komst einn í gegn en setti boltann framhjá.

Einvígið er þó langt frá því búið enda fer síðari leikurinn fram á heimavelli Brighton.

Elías Rafn Ólafsson hélt hreinu í 2-0 sigri Midtjylland á Rijeka frá Króatíu. Danska liðið er því með annan fótinn áfram í deildarkeppnina. KÍ/Klaksvík gerði á meðan markalaust jafntefli við Riga FC.

Eggert Aron Guðmundsson var í byrjunarliði Brann sem náði sterku 1-1 jafntefli gegn PAOK í Grikklandi. Kjartan Már Kjartansson kom inn af bekknum undir lokin en Kristall Máni Ingason og Sævar Atli Magnússon voru ekki með. Kristall tók út leikbann.

Í Evrópudeildinni vann Besiktas öruggan 3-0 sigur á Kauno Zalgiris og Lech Poznan slátraði Víkingsbönunum í Thun, 7-0.

Mohamed Salah var þá í byrjunarliði Trabzonspor sem tapaði óvænt 1-0 fyrir Ferencvaros á heimavelli.

Úrslit og markaskorarar:

Evrópudeildin:

Besiktas 3 - 0 Kauno Zalgiris
1-0 Oh Hyeon-Gyu ('6 )
2-0 Amir Murillo ('12 )
3-0 Orkun Kokcu ('59 , víti)

Egnatia 0 - 0 Lilleström

Lech 7 - 0 Thun
1-0 Patrik Walemark ('10 )
2-0 Allahyar Sayyadmanesh ('20 )
3-0 Patrik Walemark ('25 )
4-0 Mateusz Skrzypczak ('31 )
5-0 Radoslaw Murawski ('45 )
6-0 Daniel Hakans ('47 )
7-0 Robert Gumny ('79 )

Trabzonspor 0 - 1 Ferencvaros
0-1 Kristoffer Zachariassen ('17 )
Rautt spjald: Chibuike Nwaiwu, Trabzonspor ('90)

Universitatea Craiova 1 - 1 Ararat-Armenia
0-1 Alexandros Malis ('20 )
1-1 Nicusor Bancu ('33 )

Sambandsdeildin:

Midtjylland 2 - 0 Rijeka
1-0 Gue-Sung Cho ('20 )
2-0 Sofus Johannesen ('49 )

FC Nordsjælland 1 - 0 St. Gallen
1-0 Nicklas Rojkjaer ('13 )

Tromsö 0 - 0 Brighton

KÍ Klaksvík 0 - 0 Riga

PAOK 1 - 1 SK Brann
0-1 Kristian Eriksen ('57 )
1-1 Abdul Rahman Baba ('80 )
Elías Rafn hélt hreinu

Elías Rafn hélt hreinu

Canon

Mynd: EPA

Mo Salah og félagar töpuðu á heimavelli

Mo Salah og félagar töpuðu á heimavelli

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.