20.08.26 - 17:41
Brynjar Ingi Erluson
Aron Einar skoraði í frumraun sinni

Aron Einar var ekki lengi að skora sitt fyrsta mark fyrir Qatar SC

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Einar Gunnarsson fékk draumabyrjun með nýja liði sínu Qatar SC er hann skoraði fyrra mark liðsins í 2-2 jafntefli gegn Al Wakra í 1. umferð katörsku deildarinnar í dag.
Landsliðsmaðurinn samdi við Qatar SC á dögunum eftir að hafa leikið með Al Gharafa síðustu ár, fyrir utan tvö stutt stopp hjá Þór.
Aron var í byrjunarliðinu gegn Al Wakra í dag og þurfti aðeins átján mínútur til að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið.
Markið kom eftir hornspyrnu. Markvörðurinn varði fyrstu tilraun liðsfélaga Arons en Akureyringurinn var réttur maður á réttum stað og potaði skoppandi boltanum upp í þaknetið.
Aron fór af velli þegar um stundarfjórðungur var eftir. Næsti leikur Qatar SC er gegn Al Sadd, einu sterkasta liði Katar, eftir átta daga.