Fotbolti.net
20.08.26 - 21:13
Brynjar Ingi Erluson

Besta deild kvenna: Stjarnan hafði aftur betur gegn Blikum

Besta deild kvenna: Stjarnan hafði aftur betur gegn Blikum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan 2 - 0 Breiðablik
1-0 Vigdís Edda Friðriksdóttir ('79 )
2-0 Snædís María Jörundsdóttir ('82 )
Lestu um leikinn
Stjarnan vann 2-0 sigur á Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks í 16. umferð Bestu deildar kvenna í Miðgarði í Garðabæ í kvöld.

Vegna framkvæmda á Samsung-vellinum var leikurinn færður í Miðgarð.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og bæði sköpuðu sér ágætis færi. Hornspyrnur voru þar í stóru hlutverki en hvorugu liðinu tókst að skora fyrir hlé.

Blikar byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og bönkuðu fast á dyrnar, en Stjarnan stóðst pressuna og vann sig aftur inn í leikinn.

Snædís María Jörunsdóttir og Vigdís Edda Friðriksdóttir komu inn af bekknum og gerðu þær breytingar gæfumuninn.

Stjarnan fékk hornspyrnu á 79. mínútu sem Andrea Mist Pálsdóttir sendi inn á teiginn. Taylor Kane, markvörður Breiðabliks, fór af línunni en missti af boltanum og Vigdís nýtti sér það með því að skalla í netið.

Aðeins þremur mínútum síðar gerði Stjarnan út um leikinn. Hulda Hrund Arnarsdóttir sendi frábæran bolta frá hægri inn á Fanneyju Lísu Jóhannesdóttur sem náði að koma honum áfram á Snædísi. Hún setti boltann á milli fóta Taylor og í netið.

Blikar komust oft í góðar stöður en fóru illa með færin. Stjarnan nýtti sín tækifæri og vann 2-0 sigur, sinn annan gegn Breiðabliki í sumar, en Garðbæingar unnu einnig fyrri leik liðanna, 3-1, fyrir tveimur mánuðum.

Breiðablik er áfram á toppnum með 36 stig en gæti misst toppsætið þegar FH mætir botnliði Víkings á morgun. Stjarnan er í 3. sæti með 26 stig og vann sinn fyrsta leik síðan um miðjan júlí.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik15+2836
2FH15+2433
3ÍBV15-224
4Stjarnan15+423
5Grindavík/Njarðvík16-222
6Þór/KA15-218
7Þróttur R.15-418
8Fram16-1716
9Valur15-1313
10Víkingur R.15-1611
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.